24maí

ÚTSKRIFT frá FNV 2007

Jæja þá er komið að því GAMLA er að fara að útskrifast!!!!!!!Trúið þið því???? Nei ekki ég heldur en svona er þetta víst, eintóm gleði og hamingja geggjað...
allavega þá er tíminn frá prófum ekkert búinn að vera neitt spes eintómur sauðburður og vaktaskipti GLEÐI GLEÐI allavega eitt gleðilegt gerðist þó við fengum nýjan hund eða tík og já helgustaðir eru að massa það í nöfnunum hún heitir SPES hahaha...ótrúlegt en satt skírðum við hana ekki heldur fólkið sem átti hana á undan....Já svo er ég að fara til Portúgal í 2 vikur SWEET já ferðastúdentarnir eru að þessu sinni bara 3 jei allavega við erum búin að borga ferðina og og fáum fullt 40-50 þús kjell í gjaldeyri og þurfum ekki að borga krónu J þægilegt....
Jæja en allavega ÚTSKRIFTIN er á morgun kl 3 og veisla á Laugardaginn með grillmat og öllu tilheyrandi.
En svona líta næstu dagar út hjá mér:
Föstudagur = Útskrift
Laugardagur = Útskriftarveisla
Sunnudagur = Pakka niður dótinu sem á að fara með út
Mánudagur = Brunað suður
Þriðjudagur = Flogið út til Portúgal
Kem svo heim eftir 2 vikur eða 12 júní (ef ég kem aftur) 

Laugan kveður með útskriftar stæl
24. maí 2007 klukkan 20:33
Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir
5 athugasemdir
03maí

DIMMITERING 2007

Já dimmitering 2007 hófst á miðvikudaginn 29 apríl kl 22:00. Ákveðið var að mæta í lopapeysum og gúmmíbuxum helst APPELSÍNUGULUM. Þegar Sigurlaug mætti á svæðið var komin hópur fólks og búið að græja bolluna og snakk allflestir með bjór í hönd og með gleði bros á vör. Sigurlaug tók upp einn svell kaldan og settist svo við að finna “TITLA” á kennara-greyin henni til halds og tausts voru nokkrir vel valdir útskriftarnemar, að því loknu hófst föndrið Jóhanna kepptist við að klippa út kórónur á greyin sem á voru heftuð baggabönd til að kórónurnar myndu nú ekki detta af. Þegar klukkan sló 5:30 þá mætti driverinn okkar á staðinn ræsti dráttarvélina og við drifum okkur á pallinn, já það var lagt af stað til að vekja KENNARA-GREYIN fysti stoppustaður var hjá Geira Eyjólfs við með þvílíkum látum, söng og flauti mættum við og gerðum örugglega fjölda manns brjálaðan í hverfinu svo var hver kennari tekin fyrir og allir í hans hverfi (sökum hávaða), við enduðum á Meistaranum og drifum okkur svo á vistina og vöktum alla þar með látum fengum svo grillaðar pylsur og tilheyrandi. Eftir þetta fórum við í tíma og sungum og fífluðumst í fólkinu skelltum okkur svo í leiki með kennarana og enduðum á á krýna þá með allskonar skemmtilegum titlum. Þegar klukkan var 10:00 voru flest allir orðnir þreyttir og fólk farið að hugsa sér til hreifings aðalega heim að sofa. Það var ljúft að sofna enda raddbönd og skrokkur orðin heldur slappur eftir allan hamaganginn. 
 
Engu að síður fær þetta fólk sérstakar þakkir
·        Röggi og Árni fyrir að halda uppi stuðinu
·        Rakel fyrir að vera ekki gribba J
·        Katrín Sif fyrir að hafa skemmt sér dúlega (stuðbolti)
·        Katrín Sveina fyrir að halda fyrir partý
·        Jóhanna Ey fyrir að gera kórónurnar
·        Hjörvar fyrir að skemmta öllum
·        Þórdís fyrir að vera ábyrgðarmaður og    redda traktor og vagni
·        Og ÉG fyrir að vera ábyrgðarmaður og redda titlum og vera stuðbolti 

Laugan: power puff girl
03. maí 2007 klukkan 22:07
Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir
4 athugasemdir

Aðalvalmynd

Korn

Kysstu mig kysstu mig einu sinni enn, kysstu mig bless ég er á förum senn. Ekki segja mér þykir vænt um þig, ég hef séð hvernig þú horfir á mig. Verð að safna kjarki nýjum þrótt, örlög mín voru ráðin í nótt.

Bubbi......

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir
  • Staður: Fljótin
  • Atvinna: Er í skóla á næst besta stað í heimi Hvanneyri ;)
  • Hjúskaparstaða: Free
  • Um mig: Ég er sveitastelpa og fer mínar eigin leiðir og EKKERT getur stoppað það...

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...