Kartöflugörđunum heima......
9. mars rann upp bjartur og fagur...eða þannig crazy veður og læti....
en SMÁ veður stoppar ekki Fljótamenn og konu nei það var halið Góuball með stæl og það var bara helvíti gaman þótt það hefðu verið fáir...grímubúningar voru þema kvöldins og finnst mér svindl að ég skuli ekki hafa unnið þar sem ég var í þvílíkri múndeíngu, í BLEIKU pilsi, FJÓLUBLÁUM pallíettubol,BLEIKA vængi og FJÓLUBLÁA hárkollu ásamt GRÆNUM augnhárum. svo vann bara gaur í skotabilsi og gella með grímu.
ekki sátt.
Svo má ekki gleyma að það var SkAgFiRðInGaKvÖlD helgina áður sem var bara stuð já Laugan lagði land undir fót á föstudaginn og skellti sér suður í menninguna á föstudaginn var mér boðið í kvöldmat heima hjá Vilborgu og Hirti sem var geggjað svo var farið niður í bæ á players það var heví gaman og ég kom samt heim kl 5 jæja daginn eftir hitti ég Katrínu og Helgu í Kringlunni tókum smá búðaráp og svo fór Katrín heim til sín og ég og Helga heim til Þuru þá lögðum við okkur því okkur var boðið í kvöldmat og kokteilboð hjá Fjólu. Arndís og Fjóla mössuðu góðan mat og svo var skellt í sig. Við Helga fórum á Hressó og skemmtum okkur konunglega og skruppum svo aðeins á Glaumbar
komum heim um 7 leitið og vorum búnar að sulla í víni frá kl 8 kvöldinu áður. góð heimferð með stoppi hjá Helgu þar sem kakósúpa var á borðum og mikið var gott að fá að borða eikkað annað en pizzu og subway.

Laugan: butterfly
