18janúar
Það er bara allt að gerast:
- Ég er byrjuð í skólanum
- og er í 19 einingum,
- ég er í 3 tímum á sama tíma
- það er ekki sniðugt
- ég veit stundum ekki af hverju ég er í skólanum
- þar sem ég er búin að mæta
- 2 síðustu daga í bara 1 tíma
- því hinir féllu niður L
- svo er ég komin með vinnu

- er að vinna í Hlíðarkaup
- bestu búðinni í bænum
- geggjað stuð
- Helga Rós er orðin 20 ára
- og er hún að bjóða í partý á laugardaginn
- það verður örugglega geggjað stuð,
- svo eru öll þorrablótin að skella á
- mig hlakkar heví mikið til J
- þorrablótið heima verður 26 jan
- og svo fer ég á þorrablót með Hóla- og Viðvíkurhrepp
- 3 febrúar
- og þess má geta að ég verð tvítug deginum áður J
- Ég er að fara í íþróttaferð á þriðjudaginn með Árna Stef
- Já við erum að fara í skautahöllina að æfa okkur í
- “krullu eða curling”
- Það má þakka fyrir ef það gerist ekki eitthvað í þeirri ferð
- handleggsbrot eða eitthvað
- við stöllur Katrín Sif, Katrín Sveina og ég
- ætlum bara að gera ferð úr þessu og fara í bíó í leiðinni
- jæja ekkert annað hefur á daga mína drifið
- svo ég segi þetta gott í bilið.
Laugan: til í curling
04janúar
Árið 2007....tja svo sem allt í lagi þetta verður merkis ár ég verð tvítug og útskrifast í vor og fer í útskriftarferð til Krítar
svo ætla ég að vinna í brúðkaupi og svo þegar haustið kemur veit ég ekkert hvað ég á að gera??? Ella systir vill ólm fá mig til Noregs og kemur með ýmis gylliboð en hvað ég geri veit ég ekki...
..
Jólin voru mjög góð vorum mörg heima um jólin 13 stykki, og jóladagur var æðislegur um kvöldið spiluðum við trivial til að ganga 5 og hlógum alveg helling og auðvitað unnum ég og Andri, ætlaði á jólaball annan í jólum en það fór aðeins öðruvísi en ætlað var, fór upp á krók og kom ekki heim fyrr en seint um kvöldið. Svo liðu nú dagarnir og 29 fórum við til Geira bróður í grill því mamma og pabbi áttu 40 ára brúðkaupsafmæli
mjög gott að fá grillkjöt í staðinn fyrir allt hitt gúmmelaðið, á gamlárskvöld borðaði ég heima og náði svo í Iðunni og við brunuðum í Skagafjörðinn í Enni til Öldu og höfðum gaman af, svo kom Elín og við skelltum okkur á krókinn og drifum okkur á ball sem var helvíti gaman.
Núna eru allir að byrja í skólanum á morgun nema ég ég byrja ekki fyrr en 8 jan sem er bara allt í lagi maður getur slakað vel á eftir allt þetta jólabrask.
Laugan: borðaði svínakjöt, lambakjöt, humar, grillkjöt og hreindýrakjöt yfir jólin geri aðrir betur.....