04nóvember

Jæja góðan daginn egg og beikon.....

Jæja gamla er ekki að standa sig í bloggheimum.....
það er nú langt síðan síðast og marg sem hefur skeð...
Til dæmis er ég flutt í Borgarfjörðinn nánar tiltekið Hvanneyri og uni mér vel þar með Ingiríði...
Já gamla skellti sér í Bændaskólann og hefur það gott saknar reyndar Pabba og Mömmu smá en það er allt í lagi það er svo margt sem skeður hér til að hafa ofanaf manni jei
Ég var að vinna á hótelinu í sumar en hætti svo og fór að vinna á Shellinu sem er alveg snilldar staður til að vinna á.
Ég sem sagt hef það bara geggjað gott og er virkilegar ánægð hér á Hvannó með betri stöðum sé ég hef verið á en auðvitað eru fljótin BEST........

Laugan: bóndi er bústólpi
04. nóvember 2008 klukkan 10:15
Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir
1 athugasemd
21apríl

Jæja þetta er rykfallið

Vó það er margt sem hefur á daga mína drifið núna undanfarið
Jólin gegnu smurt, ég byrjaði að vinna á sláturhúsinu í Janúar og er búin að vera að vinna þar núna síðustu mánuði hætti þar svo 9 maí og fer í sauðburð til pabba sæta og svo 1 Júní er það bara Hótel Varmahlíð og á eftir því kemur það sem mér finnst rosalega spennandi  HVANNEYRI hell yeah ég og Ingríður ætlum nú aldeilis að láta vaða í Borgarfjörðinn og er það virkilega á heilanum á mér og það er mjög líklegt að ef þú hittir mig þá láti ég dæluna ganga um þau málefni svo verið bara þolinmóð.....er búin að fara á alltof mörg djömm og auðvitað hafa þau gengið upp og ofan og er þá áberandi sérstaklega daginn eftir hvað ég er alltaf að meiða mig mikið og man yfirleitt ekkert hvernig það gerðist svo er ég líka reglulega að setja spretthlaupsmet á heimleið eftir barinn sem hefur oft verið mjög gaman heheheheÉg veit að ég hef ekki verið dugleg að blogga en ætla að reyna að gera bragabót á því.......

En núna ligg ég í leti hjá stelpunum og hef það gott svo ég læt þetta gott í bilið
 

Laugan: svo laus og liðug
21. apríl 2008 klukkan 21:06
Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir
5 athugasemdir
08janúar

Jeeesssss

vó það hefur nú mikið skeð síðan síðasta bloggfærsla var skráð t.d. komst ég ekki heim á réttum tíma var fokking veðurtept í Osló ekki mjög vinsæl hjá minni. en daginn eftir komst ég heim og hitti Fjólu mína og bumbus og Dötti bróðir bjargaði lífi mínu og Alda líka Dötti skutlaði mér í Staðarskála og þar beið Alda eftir mér ok kom mér á djammið ÞÚSUND þakkir fyrir það, svo komu bara jólin með öllu tilheyrandi og svo djammi eftir þau sem var bara geggjað gaman ýmirslegt sem skeði og skeði ekki svo kom bara allt í einu þrettándinn og frábært ball í Árgarði Geirmundu alveg að standa sig.
jebb stiklað á stóru

Laugan: hress 
08. janúar 2008 klukkan 13:49
Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir
6 athugasemdir
13desember

Ísland vs Noregur

Hér á eftir verða rituð nokkur orð með tilliti til Noregs.

hehehe



jæja ég ætla að gera langa sögu stutta og segja frá helstu atburðum sem hafa átt sér stað í Noregi á þessum 2 og hálfa mánuði sem ég hef dvalist hér.

Eftir 5 daga dvöl í noregi var ég komin með vinnu á Storvollen og er búin að vinna þar í 2 mánuði.
Þar gerðist margt skemmtilegt t.d. var haldin mörketidsfest við fórum oft på tur í storvollen hallen í íþróttir, svo var auðvitað jólahlaðborðið fræga og margt,  margt fleira.
Ég var drifin á haustfagnað íslendinga hjá íslendinga-félaginu eftir 2 daga í Noregi
búin að fara margsinnis niður í bæ á djammið með Villa og Bjarney og sérstaklega På Byen snilldarstaður.
Verið svo fræg að sjá og HITTA elg og sjá hreindýr,
versla alveg helling og alltaf mikið,
fara í klippingu í Noregi, keyra í Noregi, borða misjafnlega góðan mat í noregi, léttast um 7 kíló í Noreg og síðast en ekki síst vera með æðislegri fjölskyldu í Noregi.
 

En eins og það var nú óraunverulegt fyrir 2 mánuðum þá er ég nú samt að koma heim á morgun til míns ástkæra Íslands
Það er þétt dagskrá sem bíður mín á morgun:
kl 9:15 mæta á fluvöllinn í Tromsö og tjekka mig inn og leggja svo í hann til Oslo kl 10:15, koma til Oslo um c.a. 12 leitið bíða þar í 4 tíma fljúga þá heim til Íslands og vera komin þangað kl 18:00 hlaupa í gegnum fríhöfnina en ekki má gleyma að kaupa Jagermasterinn hitta Fjólu sem brunar með mig á Reykjarvíkurflugvöllinn þar sem ég tek einu sinni enn flugið og þá til Akureyrar þar sem ég næ ekki fluginu á Krókinn (FÚLT) þar hitti ég mömmu Þuru Ingiríði og Margréti. Svo bruna Ingiríður og Margrét með mig heim í heiðardalinn til pabba svo þegar þangað er komið ætla ég aðeins að fá að anda svo verður örugglega bara tekið strauið á krókinn og hitta hann elsku ZORRÓ minn.

Laugan: 1 nótt eftir í Noregi og svo BEINT heim :)

13. desember 2007 klukkan 18:01
Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir
1 athugasemd
09desember

Forskot á sæluna

Já dagurinn í dag er sko sannarlega búinn að vera góður, því í dag kom Tindra og vakti mig í ekta Helgustaðar morgunkaffi (ristabrauð og meðlæti) svo þegar það var búið tókum við smá stormsveif og tókum til, eftir það ákváðum við að fara að baka piparkökur sem var auðvitað gaman og þegar við vorum að skreyta þær fór ég aftur um nokkur ár og fannst eins og ég væri heima í Helgó að skeyta kökur með Hirti og Steina. Þegar það var búið helltum við okkur í það að gera karamellur namm namm og á meðan þær voru að storkna horfðum ég og Tindra á "Pétur og kötturinn Brandur" ekki lítið fyndið þarna litlu fígúrurnar sem eru allan tíman í myndinni. 
Svo ákváðum við að borða jólamatinn í Noregi í dag því það verður enginn heima hér um jólin við fengum Ribbu sem er geggjað góð purusteik og svo var ís og karamellusósa í eftir rétt namm namm.

En núna í dag eru bara 5 dagar þangað til að ég kem heim en það verður bara deilig

Laugan: ný komin úr klippingu og heví sátt

09. desember 2007 klukkan 20:50
Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir
5 athugasemdir
07desember

VIKA til stefnu....

jæja krakkar mínir þá er þetta allt að hafast..
síðustu dagar hafa verið skemmtun og veikindi í senn
Laugan mætti eldrhress í vinnunna á mánudaginn ekkert að því, var svo heima með Tindru á þriðjudagin því hún er  búin að vera veik. Miðvikudagurinn klukkan 5:00 frábært Laugan á að mæta í vinnu kl 7:15 en nei kl 5:00 gubbupest frábært jæja Ella fer í leikskólan með Tindru og viti menn 3 af fjórum á morgunvakt veikir SHITT krísa á leikskólanum leiðindi en svona er þetta og það reddaðist allt (svona er maður ómissandi bara krísa ef maður mætir ekki) hehe, fór samt með Ellu systir í Íslendinga saumaklúbbinn jei það voru litlujólin ég fékk pakka ;)
Fimmtudagur Laugan heima átti reyndar ekki að vera að vinna fór með Ellu og Tindru í Leikhús sem var rosalega gaman Jul på månatoppen frábært leikrit þar á ferð.
Föstudagurinn rann upp bjartur og fagur eða ætti ég að segja myrkur og fagur því hér er engin sól bara myrkur jæja mætti í vinnuna og það seinasti dagurinn í vinnunni en NEI maður er svo ómissandi að ég var spurð þegar þær loksins þorðu hvort ég gæti unnið á mánudaginn LAUGAN sagði auðvitað JÁ ekkert að því bara fjör örugglega.
En á morgun er ég að fara í klippingu sem verður æðislegt og svo ætlum ég og Tindra að skreyta piparkökur og gera karamellur á sunnudaginn.
Það sem framundan er: vinna á mánudag versla á þriðjdag miðvikudag og fimmtudag og koma sem heim til míns ástkæra ÍSLANDS á föstudaginn Hlæjandi

Laugan: "nú minnir svo ótal margt á Jólin"
07. desember 2007 klukkan 18:56
Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir
Engin athugasemd
04desember

Tralla ralla la

jæja komin tími á smá blogg eða hvað???

í dag er ég bara búin að vera heima og kósa mig með Tindru því hún er búin að vera lasin en við erum búnar að hafa það ansi gott horfa á 2 teiknimyndir og borða brauð í grillinu "a la Lauga" svo fékk hún kinder-egg ekki slæmt að vera heim með frænku sem tekur upp á ýmsu skemmtilegu t.d. leyfir henni að horfa mikið á TV og spilar og syngur (gamla er fjölhæf).

Í dag á ég bara 10 daga eftir og munu þeir líða hratt eins og dögg fyrir sólu...því þessi vika verður heldur betur skemmtileg. Það eru nú strax liðnir 2 dagar af henni svo er það leikskólinn á morgun dund á Fimmtudagin nema ég verði beðin um að vinna sem væri líka allt í lagi, svo er síðasti vinnudagurinn á föstudaginn KLIPPING langþráð á laugardaginn örugglega pínu djamm líka eða eitthvað sniðugt SVO rennur sunnudagurinn upp sá síðast í noregi og þá eru líka bara 5 dagar þangað til VÍKINGURINN Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir mætir heim í heiðardalinn og get ég rétt ímyndað mér að þá verði kátt í höllinni Hlæjandi 

Litla Laugan: með gleði í hjarta 
04. desember 2007 klukkan 13:57
Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir
3 athugasemdir
30nóvember

I´m back

hell yeah

hef nákvæmlega ekkert að segja ykkur nema það að ég á bara eftir að vinna 1 viku í leikskólanum enn eða einungis 3 daga mánudag miðvikudag og föstudag JEI


2 Vikur í dag í að Laugan mæti á klakann :)

Laugan "bless bless bless"
30. nóvember 2007 klukkan 15:12
Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir
3 athugasemdir
25nóvember

vúhú


já gott fólk það
 
eru komnar inn

myndir :)


NJÓTIÐ VEL


LAUGAN vúhú
25. nóvember 2007 klukkan 21:28
Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir
5 athugasemdir
24nóvember

When the stars go blue....



Jei fór á geggjað vel heppnað jólahlaðborð á Steakers í gær með leikskólanum og viti menn það mætti engin í rúllupylsukjólum bara pínu þröngum pilsum hehehe fengum geggjað gott nautakjöt og meðlæti  umm nammi namm

svo þegar við vorum búin að borða í 3 tíma þá var haldið í bæinn og tekið pöbba rölt en það gat engin ákveðið sig hvert hann vildi fara þannig að það var farið á 5 eða 6 staði til að skoða þá fengum ég og Bjarney nóg og fórum á På Byen og vorum þar og skemmtum okkur konunglega svo hálftíma seinna komu allir hinir og þá varð fyrst kátt í höllinni þvílík stemming svo klukkan hálf 4 tókum við náttugluna heim og það var gott að komast í sitt ból eftir góðan dag.


Aðeins 20 dagar til stefnu.... 



Laugan: "alltaf léttur"
24. nóvember 2007 klukkan 18:31
Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Korn

Kysstu mig kysstu mig einu sinni enn, kysstu mig bless ég er á förum senn. Ekki segja mér þykir vænt um þig, ég hef séð hvernig þú horfir á mig. Verð að safna kjarki nýjum þrótt, örlög mín voru ráðin í nótt.

Bubbi......

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir
  • Staður: Fljótin
  • Atvinna: Er í skóla á næst besta stað í heimi Hvanneyri ;)
  • Hjúskaparstaða: Free
  • Um mig: Ég er sveitastelpa og fer mínar eigin leiðir og EKKERT getur stoppað það...

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...